Prince kærir sænska sjóræningja

Prince hyggst kæra sænskan skráaskiptavef.
Prince hyggst kæra sænskan skráaskiptavef. Reuters

Tónlistarmaðurinn Prince hyggst kæra Svíana sem reka The Pirate Bay skráaskiptavefinn. Lögfræðingur Prince segir að málið snúist um margar milljónir Bandaríkjadala og verður málið sótt fyrir bæði sænskum og bandarískum dómstólum.

Í Svenska Dagbladet í dag kemur fram að hljómsveitin Village People taki þátt í sömu kæru og hugsanlegt sé að Van Morrison og rétthafi að tónlist Chet Baker gæti einnig tekið þátt í þessari sömu kæru.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert