Sjö létust í ólöglegum kappakstri í Maryland

Sjö létust í ólöglegum kappakstri í Maryland í Bandaríkjunum þegar bíll ók inn í hóp áhorfenda. Slysið átti sér stað við Accokeek í Maryland, rúmlega 30 kílómetrum frá Wahington.

A.m.k. fjórir særðust alvarlega. Óvitað er hvað olli því að hvítur sportbíll ók inn í hópinn og ekki liggur fyrir hvort hann hafi verið þátttakandi í kappakstrinum. Rannsókn er hafin á slysinu en lögreglan í Maryland segir að enn sem komið er séu spurningarnar varðandi það hvernig atvikið varð mun fleiri en svörin.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert