Byltingarverðirnir í Íran, úrvalssveitir íranska hersins, spá því að áður en langt um líður muni liðsmenn Hezbollah, samtaka herskárra sjíta í Líbanon, leggja Ísrael í rúst, að því er Fars-fréttastofan greindi frá í dag.
Æðsti maður Byltingarvarðanna, Mohammad Ali Jafari, lét m.a. þessi orð falla í samúðarkveðju sem hann sendi yfirmanni Hezbollah, Hassan Nasrallah, vegna falls háttsetts manns í samtökunum, Imad Mughnieh, sem var ráðinn af dögum í Damaskus í síðustu viku.