Raúl Castro var eini frambjóðandinn í forsetakjöri kommúnistaflokksins á kúbverska þinginu í dag og mun hann því taka við af Fidel bróður sínum. José Ramón Machado, annar gamall félagi Castros, var í kjöri sem varaforseti.
Raúl, sem er 76 ára, tók við embætti forseta tímabundið í júlí 2006 þegar Fidel gekkst undir skurðaðgerð.