Viðræður hófust í Egyptalandi í dag á milli Hamas-liða, íslömsku Jihad samtakanna og egypskra sáttasemjara um að koma á vopnahléi milli palestínskra uppreisnarmanna og Ísraela. Fundurinn fór fram í El Arish í dag, skammt frá landamærum Egyptalands og Gasa, þrem dögum eftir að Ísraelar hættu aðgerðum á Gasa sem urðu 120 Palestínumönnum að bana.
Fram kemur á fréttavef Reuters, að stöðva verði eldflaugaárásir á Ísrael frá Gasa og innrásir Ísraela á yfirráðasvæði Hamas, til þess að auðvelda friðarviðræður á milli Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Ísraela. Abbas frestaði viðræðum eftir árásir Ísraela en samþykkti í gær að halda viðræðum áfram.
Háttsettur félagi í Hamas, Mahmoud al-Zahar, var viðstaddur fyrir hönd Hamas og Khader Habib, leiðtogi Jihad, staðfesti að samtökin hefðu sent nefnd til Egyptalands til að ræða árásirnar. Stjórnvöld í Egyptalandi óskuðu eftir því að palestínsku samtökin sendu fulltrúa sína til Egyptalands til að ræða stöðu mála.