Rússneskur hermaður settist að því er virtist ölvaður undir stýri á skriðdreka og ók honum á íbúðarhús og verslun. Atvikið var kvikmyndað á myndsíma.
Þetta gerðist í litlu þorpi í Úralhéraði. Talsmaður hersins segir útilokað að hermaðurinn hafi verið drukkinn þar sem hann hafi verið á leið á heræfingu.