Mikið óveður hefur gengið yfir vestur-og suðurströnd Englands í dag, og vara veðurfræðingar við versnandi veðri. Víðtæk röskun hefur verið á samgöngum og allt að 12.000 heimili eru rafmagnslaus, að því er kemur fram á fréttavef BBC.
Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun í Bretlandi, er fólk beðið um að vera varkárt og varað er við stormi við strendurnar, og eru 41 flóðaviðvaranir í gildi. Megin áhættusvæði eru núna Bristol sundið, Severn árósið og Somerset ströndin á vestur Englandi, nærri Wales.
Að sögn talsmanns Umhverfisstofnunarinnar hefur lægt við hluta af suðvestur ströndinni. Í morgun var varað við flóðum í Devon og Cornwall, en talið er að hættan hafi minnkað.