Lögregla í Panama lagði hald á 1500 kíló af kókaíni í kólumbísku flutningaskipi sem var staðsett við strendur Panama, og er þetta mesta magn sem lögregla í Panama hefur gert upptækt. Einnig fannst talsvert magn af vopnum í skipinu.
Tveir menn voru handteknir en talið er að þeir séu frá Kólumbíu, en þjóðerni þeirra hefur ekki verið staðfest. Að sögn lögreglu bendir ekkert til þess að mennirnir tengist uppreisnarsveitum.