Darling kynnir fjárlagafrumvarp

Darling kynnir sín fyrstu fjárlög í dag.
Darling kynnir sín fyrstu fjárlög í dag. Reuters

Fjármálaráðherra Breta, Alistair Darling mun síðar i dag kynna nýtt fjárlagafrumvarp. Þetta er í fyrsta sinn sem hann gerir það en breskir fréttaskýrendur telja að hann muni kynna hækkanir á áfengissköttum og þeim bifreiðum sem menga mest.

BBC segist telja öruggt að hann muni fresta fyrirhugaðri hækkun á eldsneytissköttum vegna hækkana á heimsmarkaðsverði á hráolíu.
Íhaldsmenn telja að stjórnin geti ekki lækkað skatta til að örva hagkerfið vegna erlendra lána sem hún hefur tekið.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert