Var flæktur í hneykslismál

Hugsanlegt að Todd hafi framið sjálfsmorð vegna yfirvofandi hneykslismáls.
Hugsanlegt að Todd hafi framið sjálfsmorð vegna yfirvofandi hneykslismáls. Reuters

Breski lögreglustjórinn, Michael Todd sem framdi sjálfsmorð á þriðjudaginn var gerði það hugsanlega vegna hneykslismáls sem var um það bil að komast í hámæli. Daily Mail hefur skýrt frá því að Todd sem var giftur þriggja barna faðir muni hafa átt í tygjum við fjölmargar konur.

Í breskum fjölmiðlum er sagt frá því að eiginmaður viðskiptakonu sem Todd mun hafa verið í ástarsambandi við hafi komist að sambandi þeirra.
Todd var talinn líklegur til að taka við stöðu yfirmanns bresku lögreglunnar á eftir Sir Ian Blair.

Í breskum fjölmiðlum í dag kemur fram að hugsanlegt sé að Todd hafi orðið úti en það voru sms skilaboð frá honum sem vöktu ugg viðtakenda og urðu til þess að leit var gerð að honum.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert