Að minnsta kosti 155 manns særðust í kröftugum sprengingum í hergagnabirgðastöð skammt fyrir utan Tirana, höfuðborg Albaníu, að sögn yfirvalda í Albaníu. Ekki er vitað um orsök sprenginganna en flestir hinna særðu voru óbreyttir borgarar, að því er kemur fram á fréttastofu AFP. Gluggar brotnuðu á flugvelli í nágrenninu og öllum flugum hefur verið frestað. Að sögn Forsætisráðherra Albaníu, Sali Berisha, er ástandið alvarlegt.