Fimmtán í haldi frönsku lögreglunnar

Fimmtán eru í haldi lögreglu í Frakklandi eftir aðgerðir lögreglunnar í úthverfum Parísar í nótt. Tengjast handtökurnar árásum á lögreglu fyrr í mánuðinum þar sem fimm lögreglumenn særðust lítillega er átök brutust út í bæjunum Grigny og  Viry-Chatillon.

Fimm þeirra sem voru handteknir í nótt eru undir lögaldri en tíu eru á aldrinum 18-22 ára. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert