Björgunarmenn hafa fundið fleiri látna í rústum, eftir að byggingarkrani hrundi á fjölbýlishús og byggingar í kring á Manhattan á laugardaginn. Tala látinna er komin upp í sjö, en 24 slösuðust. Ekki liggur fyrir hvers vegna kraninn hrundi, en rannsókn stendur yfir.