115 bíla árekstur

Að minnsta kosti 33 slösuðust, þar af 6 alvarlega, í 115 bíla árekstri sem varð í mikilli hríð á aðalþjóðvegi Tékklands í dag. Talið er að um 20 þúsund manns hafi setið fastir í bílum sínum í nokkra klukkutíma en um 50 km röð myndaðist eftir slysið sem átti sér stað í um 100 km frá Prag á leiðinni til Brno.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert