Móðir tveggja unglingsdrengja sem slógu blaðburðarpilt í hel í Danmörku á miðvikudag hefur beðist opinberlega afsökunar á framferði sona sinna. Segist hún árangurslaust hafa leitað aðstoðar yfirvalda til að hemja drengina. Hún vísar því hins vegar á bug að kynþáttafordómar hafi ráðið gerðum þeirra. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
Pilturinn sem lést var af erlendu bergi brotinn og segja vitni að árásarmennirnir þrír hafi hrópað slagorð gegn útlendingum er þeir réðust á hann með hafnarboltakylfum.
Bræðurnir eru 15 og 17 ára en 19 ára piltur hefur einnig verið handtekinn vegna árásarinnar. Segir lögregla yngri bróðurinn vera yngsta einstakling sem grunaður hafi verið um manndráp í landinu.
Móðir bræðranna segist í viðtali við sjónvarpsstöðina TV 2 hafa undanfarin fjögur til fimm ár barist fyrir því að fá félagslega og sálfræðilega aðstoð fyrir yngri soninn en án árangurs. Þá hvetur hún drengina til að greina frá því hvað hafi gerst þannig að bæði Danir og fólk af erlendum uppruna í landinu geti unnið úr því og leitað sátta.