Einn Egypti lét lífið og tveir særðust, þegar bandarískir sjóliðar skutu á farandsala á flekum, sem nálguðust bandarísk herskip í Súesskurðinum í kvöld.
Herskipið, Global Patriot, var á leið frá Rauðahafi til Miðjarðarhafs þegar hópur egypskra farandsala, sem vildi selja smáhluti, nálgaðist það á litlum flekum. Bandaríkjamennirnir skipuðu mönnunum á flekunum að stöðva og hófu skothríð þegar skipununum var ekki hlítt.