Útlagastjórn Tíbeta á Indlandi segist hafa fengið fréttir af því, að mótmælaaðgerðir hefðu verið gegn Kína í Lhasa, höfuðborg Tíbets, í dag. Þessar fréttir hafa ekki fengist staðfestar.
Ef rétt reynist eru þetta fyrstu mótmælaaðgerðirnar í borginni frá því kínverski herinn bældi niður mótmæli tíbetskra lýðveldissinna sem hófust 10. mars.