Byrjaður að leita að varaforseta

Öldungadeildaþingmaðurinn John McCain
Öldungadeildaþingmaðurinn John McCain Reuters

John McCain, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, segist vera byrjaður að búa til lista yfir mögulegan varaforseta sinn.

Hann vonast til að geta tilkynnt val sitt áður en ráðstefna repúblikana hefst snemma í september. „Ég geri mér grein fyrir mikilvægi þessa máls með tilliti til aldurs míns,“ sagði McCain, en hann er 71 árs gamall, en hann tryggði sér tilnefningu síns flokks fyrir rúmum mánuði síðan.

Í útvarpsviðtali í dag gaf McCain ekki neinar vísbendingar um hver yrði fyrir valinu. „Ég er bara nýbyrjaður að skoða málið af alvöru.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert