Benedikt XVI páfi minntist Jóhannesar Páls II páfa í messu í Rómarborg í dag en þrjú ár eru liðin frá andláti páfans. Lofaði Benedikt XVI hæfileika Jóhannesar Páls og virðingu hans fyrir mannkyninu í ávarpinu.
Þúsundir fylgdust með messu páfans á Péturstorginu, margir þeirra Pólverjar líkt og Jóhannes Páll II.