Kaku Yamanaka, sem var elst allra Japana, er látin, 113 ára, að því er greint var frá í dag. Hún var flutt á sjúkrahús í morgun eftir að hún veiktist á elliheimilinu sem hún bjó á í Yatomi-borg, að því er talsmaður heimilisins greindi frá.
Yamanaka fæddist 11. desember 1894. Hún varð elsti Japaninn í síðasta mánuði, þegar Tsuneyo Tyonaga, sem einnig var 113 ára, lést. Ekki liggur fyrir hver er nú elstur Japana eftir fráfall Yamanaka.