Flutningavél, í eigu súdansks flugfélags, brotlenti á flugvellinum í Chisinau í Moldavíu í gærkvöldi. Allir um borð, átta manna áhöfn, fórust í slysinu. Unnið er að rannsókn slyssins en vélin er af AN-32 gerð. Fjórir áhafnarmeðlimir eru frá Úkraínu en aðrir frá Moldavíu.