Tveggja hreyfla flugvél hrapaði fyrir utan Los Angeles í morgun og lentu hlutar vélarinnar á tveim íbúðarhúsum. Tveir farþegar vélarinnar slösuðust alvarlega en einnig slösuðust þrír íbúar húsanna. Vélin sem er af gerðinni Cessna 310 hrapaði nærri Compton/Woodley flugvellinum. Bolur vélarinnar lenti á þaki eins hússins og vinstri vængur vélarinnar lenti á öðru húsi.
Í vélinni voru tveir karlmenn sem slösuðust alvarlega. Í einu húsanna slasaðist kona alvarlega, en tveir aðrir sluppu með minniháttar áverka.
Orsök slyssins er í rannsókn.