Berlusconi spáð öruggum sigri í öldungadeildinni

Walter Veltroni og Silvio Berlusconi berjast um völdin á Ítalíu.
Walter Veltroni og Silvio Berlusconi berjast um völdin á Ítalíu. Reuters

Bandalagi mið- og hægriflokka undir forustu Silvios Berlusconis, er nú spáð öruggum meirihluta í öldungadeild ítalska þingsins en kosið var til beggja deilda þingsins í gær og dag. Mjórra er á mununum í neðri deild þingsins milli Berlusconis og bandalags mið- og vinstriflokka undir forustu Walters Veltronis.

Samkvæmt kosningaspá ítalska ríkissjónvarpsins RAI fær flokkabandalag Berlusconis 164 sæti í öldungadeildinni en flokkabandalag Veltronis 139 þingsæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert