Sendifulltrúi George W. Bush, Bandaríkjaforseta, mun eiga fund með Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbeta, í næstu viku. Mun það verða fyrsti fundur sem yfirvöld í Bandaríkjunum eiga með Dalai Lama, frá því kínversk stjórnvöld hófu herferð í Tíbet í kjölfar mótmæla sem brutust út í Lhasa, höfuðborg landsins.
Paula Dobriansky mun eiga fund með Dalai Lama í Michigan ríki en hún mun leggja áherslu á afstöðu Bandaríkjamanna til þess að kínversk stjórnvöld hefði samræður við Dalai Lama. „Við höfum áhuga á að heyra afstöðu hans á stöðu mála í Tíbet," segir talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna.
Dalai Lama kom til Bandaríkjanna síðastliðinn fimmtudag og heimsækir meðal annars, Seattle, Michigan og New York.