Benedikt XVI páfi kom til Bandaríkjanna í dag og tóku George Bush Bandaríkjaforseti og Laura kona hans á móti honum á flugvellinum. Fordæmislaust er að forseti Bandaríkjanna taki á móti þjóðhöfðingja við komu til Bandaríkjanna. Þetta er fyrsta heimsókn Benedikts páfa eftir að hann tók við embættinu.