Blóðbað á Gasasvæðinu

Að minnsta kosti 14 Palestínubúar létu lífið í loftárás Ísraela á Gasa í dag, þar af þrjú börn.  Í öðru atviki létu kvikmyndatökumaður Reuters fréttastofunnar og tveir óbreyttir borgarar lífið í sprengjuárás. 

Á myndbandi úr myndavél tökumannsins má sjá þegar nálægur skriðdreki Ísraela skýtur í átt að fjölmiðlamerktu ökutæki.  Talsmenn Reuters segja að þeir muni krefjast rannsóknar á dauða Fadel Shana, 23 ára Palestínumanns, sem hafði starfað hjá Reuters í um þrjú ár við myndatökur á átakasvæðum. 

Talsmenn Ísraelshers segjast ekki kannast við að skriðdreki á þeirra vegum hafi skotið á ökutæki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert