Vladimír Pútín, fráfarandi Rússlandsforseti, hafnaði í gær þeim orðrómi að hann hefði skilið við konu sína Ljúdmílu í leyni og hygðist ganga í hjónaband á nýjan leik.
Forsetinn hefur að undanförnu verið orðaður við hina 24 ára gömlu fimleikakonu og Ólympíuverðlaunahafa Alinu Kabayeva, sem var nýverið kjörin á þing fyrir Sameinað Rússland, flokk Pútíns.
Pútín brást reiður við þegar hann var spurður um orðróminn á Ítalíu í gær þar sem hann er í heimsókn. „Það er ekki sannleikskorn í þessari sögu. Ég hef alltaf haft skömm á því þegar fólk með stór nef og erótíska óra er að snuðra í annarra manna málum," sagði hann.
Fréttir bárust af því í dag að blaðinu, sem birti frétt um málið í Rússlandi, hafi nú verið lokað.