Íraski sjítaklerkurinn Muqtada al-Sadr lýsti því yfir í dag að yfirvöld í landinu hefðu nú lokatækifæri til að láta af hernaði sínum gegn stuðningsmönnum hans í borginni Basra í suðurhluta Íraks. Að öðrum kosti muni hann lýsa yfir stríði sem muni vara þar til „frelsi vinnist".
Fjórtá liðsmenn Mehdi hers Sadrs eru sagðir hafa látið lífið í átökum við íraskar og bandarískar hersveitir í Basra í nótt og í morgun en átökin munu hafa britist út er hersveitir lokuðu Hayania hverfinu til að leita þar að vopnum.
Hundruð manna féllu er hörð átök blossuðu upp í Basra fyrir þremur vikum en þau átök brutust einnig út eftir að íraskar hersveitir freistuðu þess að afvopna uppreisnarmenn í borginni, þeirra á meðal liðsmenn Mehdi-hersins.
Átökunum lauk þá eftir að yfirvöld í Írak veittu þeim þriggja daga frest til að afvopnast. Sá frestur var síðan framlengdur en engar fréttir hafa borist af því að vopn hafi verið afhent yfirvöldum.