Talið er að 19 ára gamall piltur, sem fannst látinn í bænum Bridgend í Wales í morgun hafi framið sjálfsmorð. Reynist það rétt hafa 19 ungmenni svipt sig lífi í bænum frá því í janúar á síðasta ári. Engar skýringar hafa fundist á þessu.
Pilturinn hét Shaun
Rees en hann fannst snemma í morgun. Ekki er talið að honum hafi verið ráðinn bani.