Austurrískir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvers vegna stjórnvöld og íbúar í austurríska bænum Amstetten hafi ekki tekið eftir „píslarvættinu í hryllingshúsinu," jarðhýsinu þar sem karlmaður hélt dóttur sinni fanginni í 24 ár og eignaðist með henni sjö börn.
Á forsíðum blaða í dag eru fyrirsagnir á borð við: Glæpur skrímslis, og Versti glæpur allra tíma.
Lögreglan hefur birt myndir úr jarðhýsinu þar sem konunni og börnum hennar var haldið föngnum.