Bandaríkin loka sendiráði í Hvíta-Rússlandi

Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur gefið fyrirmæli um að sendiráði  Hvíta-Rússlands í Washington og ræðismannsskrifstofu landsins í New York verði lokað. Þá hafa bandaríksk yfirvöld ákveðið að loka sendiráði sínu í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands. Stjórnmálasambandi ríkjanna hefur þó ekki verið formlega slitið.

Mun bandaríska utanríkisráðuneytið hafa veitt Hvít-Rússum frest til 16 maí til að kalla sex stjórnarerindreka sína í landinu heim en sendiráðinu í Minsk verður lokað þegar í stað enda vísuðu yfirvöld í Hvíta-Rússlandi bandarískum stjórnarerindrekum úr landinu í gær. Var þeim gefinn 72 klukkustunda frestur til að yfirgefa landið.

Mjög óvenjulegt er að Bandaríkin loki sendiráðum sínum á friðartímum en samskipti Bandaríkjanna og Hvíta-Rússlands, hafa versnað mikið á undanförnum mánuðum. 

Bandarísk yfirvöld hafa harðlega gagnrýnt  Alexander Lukashenko, forseta landsins, og krafist þess að yfirvöld í landinu sleppi pólitískum föngum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert