Birgðir af undanrennudufti þær minnstu í 10 ár

Birgðir veraldar af undanrennudufti eru þær minnstu í áratug, en …
Birgðir veraldar af undanrennudufti eru þær minnstu í áratug, en það gæti þýtt að mjólkurverð til neytenda verði áfram hátt. Þorkell Þorkelsson

Birgðir veraldar af undanrennudufti eru nú þær minnstu í áratug að því er fram kemur í nýjasta hefti tímaritsins FoodCulture sem gefið er út af dönsku bændasamtökunum.   Samkvæmt spá frá bandaríska landbúnaðarráðuneytinu verða birgðir um 50.000 tonn á þessu ári, en árið 1998 voru þær um 250.000 tonn.   Að mati Leif Nielsen aðalhagfræðings samtakanna, þýðir þetta að mjólkurverð til neytenda verður áfram hátt.
 
Á fréttavef Landsambands Kúabænda kemur fram að litlar birgðir auki hættuna á spákaupmennsku sem getur leitt til mikilla verðsveiflna á afurðum.  Af þeim sökum getur verð til neytenda áfram haldist hátt, þrátt fyrir að hráefnisverð til bænda rokki upp og niður. Þá kemur fram að ört vaxandi notkun á mjólk í heiminum ýti undir verðið en því er spáð að Kínverjar muni tvöfalda mjólkurneyslu sína fyrir árið 2015. Aukin eftirspurn mun leiða til aukinnar framleiðslu í heiminum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert