900 nemendur grafnir

Íbúar Chengdu hlupu út á götur borgarinnar eftir jarðskjálftann í …
Íbúar Chengdu hlupu út á götur borgarinnar eftir jarðskjálftann í morgun. AP

Óttast er að nærri níu hundruð nemendur séu grafnir í rústum skóla í suðvestur Kína eftir að jarðskjálfti reið yfir landið í morgun, samkvæmt frétt kínversku fréttastofunnar Xinhua.  Nákvæmari upplýsingar um hvort nemendur séu á lífi eru ekki komnar fram.

Jarðskjálftinn sem mældist 7,8 á Richter átti upptök sín norðurvestur af Chengdu, höfuðborg Sichuan héraðs, í vesturhluta landsins. Eyðilögðust byggingar og vegir í skjálftanum

Fyrr í morgun greindi kínverska ríkisfréttastofan frá því að fimm börn hafi látist í skjálftanum og að 100 hafi slasast.  Tveir grunnskólar hrundu í skjálftanum og voru það meðal annars nemendur í skólunum sem létust. 

Jarðskjálftinn fannst víða í nágrannalöndunum, í Taílandi, Víetnam og Pakistan. Í Peking, höfuðborg Kína, sem er í um 1.500 km fjarlægð frá upptökum skjálftans, hristust byggingar til og frá.

Að sögn Jóns Trausta Sæmundssonar, sem staddur er í Peking, fannst skjálftinn vel þar þar sem skjálftabylgjan mældist 3,9 á Richter 7 mínútum eftir að skjálftinn reið yfir eða kl. 2:35 á staðartíma.

„Byggingin sem ég var í sveigðist fram og til baka og fólk þusti út á götu um leið og byggingin hætti að vagga. Þetta var mjög óþægileg tilfinning sem líkja má við blöndu af svima og ógleði. Stór hópur fólks safnaðist saman fyrir utan byggingar í borginni þar til tilkynnt var að óhætt væri að snúa aftur til vinnu," segir Jón Trausti.
 
Tveir eftirskjálftar riðu yfir skömmu eftir stóra skjálftann og mældust þeir 6 og 5,4 stig á Richter.

Stjórnvöld á Kína hafa ákveðið að senda herinn á skjálftasvæðið til þess að aðstoða við hreinsunarstarf.  Forseti Kína, Hu Jintao, segir að allt verði gert til þess að bjarga fórnarlömbum skjálftans en talið er að mun fleiri hafi látist og slasast heldur en fyrstu tölur benda til, samkvæmt alþjóðlegum fréttastofum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka