Hillary Clinton vann öruggan sigur í forkosningum Demókrataflokksins í Vestur-Virginíuríki í dag, að sögn AP fréttastofunnar og sjónvarpsstöðva, sem byggja á útgönguspám.
Samkvæmt kosningaspá Fox sjónvarpsstöðvarinnar fékk Clinton 68% atkvæða en Barack Obama 32%.
Alls er kosið um 39 kjörmenn í Vestur-Virginíu en þótt Clinton fái bróðurpart þeirra hefur Obama áfram mikið forskot í kjörmannafjölda. Samkvæmt talningu sjónvarpsstöðvarinnar CNN hefur Obama tryggt sér 1876 kjörmenn á flokksþingi demókrata í sumar þar sem endanleg ákvörðun verður tekin um hver verður forsetaefni flokksins. Clinton hefur 1703 kjörmenn en frambjóðandi þarf 2025 kjörmenn þarf til að tryggja sér útnefningu flokksþingsins.