Edwards lýsir stuðningi við Obama

John Edwards.
John Edwards. Reuters

John Edwards, sem var varaforsetaefni bandaríska Demókrataflokksins árið 2004, ætlaði í kvöld að lýsa formlega yfir stuðningi við Barack Obama sem forsetaefni flokksins nú. Þetta er áfall fyrir Hillary Clinton, sem einnig sóttist eftir stuðningi Edwards.

Tom Daschle, fyrrum leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings og stuðningsmaður Obama, sagði að þeir hefðu lengi reynt að fá Edwards til að lýsa yfir stuðningi við framboðið  en Edwards var sjálfur í framboði um tíma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert