Myrti fimm úr fjölskyldunni

Austurríska þjóðin þarf enn að takast á við fréttir af hryllilegum glæpum en í nótt gekk 39 ára karlmaður inn á lögreglustöð í Vínarborg og sagðist hafa myrt konu sína og 7 ára dóttur á heimili þeirra í borginni.

Lík foreldra mannsins fundust síðar á heimili þeirra í bænum Ansfelden og tengdafaðir hans fannst látinn í húsi í borginni Linz. Að sögn lögreglu var eitthvað af fólkinu myrt með öxi.

Engar skýringar hafa fengist á gerðum mannsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert