Tveir NATO-hermenn létu lífið í dag í aðskildum árásum í suðurhluta Afganistan í dag.
Annar þeirra lét lífið í árásum fjandmanna og hinn lést í sprengjuárás. Þjóðerni mannanna verður ekki gefið upp áður en heimalöndin hafa þegar fengið tilkynningu um lát þeirra. Alls hafa 56 erlendir hermenn látið lífið í Afganistan á þessu ári og hafa flestir látist í árásum fjandmanna.