Sky sjónvarpsstöðin segir að tveggja hæða strætisvagn hafi lent á tré á Tower Bridge Road í Lundúnum í dag og að kona hafi látið lífð og margir slasast. Lundúnalögreglan Scotland Yard segir, að konan sé talin hafa verið þarna á gangi en ekki farþegi í vagninum.