Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur úrskurðað að smáeyja, sem Singapore og Malasía hafa deilt um í 29 ár, sé hluti af Singapore. Á fréttavef BBC kemur fram að eyðieyjan Pedra Branca, sem er á stærð við fótboltavöll, sé metin vegna hernaðarlega mikilvægrar staðsetningar.
Úrskurður dómstólsins var Singapore í hag með tólf atkvæðum gegn fjórum, en deilur hófust árið 1979 þegar Malasía rengdi eignarétt Singapore.