Skipi rænt við strendur Sómalíu

Mörg skip sem sigla þurfa á þessum slóðum hafa vopnaða …
Mörg skip sem sigla þurfa á þessum slóðum hafa vopnaða verði. Reuters

Sjóræningjar rændu vöruflutningaskipi í Aden flóa skammt fyrir utan lögsögu Sómalíu í dag. Skipið er í eigu hollensku útgerðarinnar Reider Shipping en er skráð í Panama.

Skipið heitir Amiya Scan og í áhöfninni eru fjórir rússneskir yfirmenn og fimm hásetar frá Filippseyjum. Eigendur skipsins hafa lagt áherslu á að tryggja öryggi sjómannanna.

Skipið var að flytja útbúnað til djúpborunar frá Mombasa í Kenýa þar sem það lagði úr höfn fyrir viku síðan.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert