Réttarhöld eru hafin í héraðsdómi í Birmingham vegna andláts sjö ára gamallar stúlku. Khyra Ishaq, sem var flutt var á sjúkrahús í Birmingham þann 17. maí sl., lést skömmu síðar og samkvæmt breskum fjölmiðlum lést hún úr vannæringu. Lögregla hefur ekki viljað staðfesta dánarorsökina en samkvæmt breskum fjölmiðlum liggur móðirin undir grun ásamt sambýlismanni sínum um að hafa svelt hana til bana.
Angela Gordon, 33 ára og sambýlismaður hennar, Junaid Abuhamza, 29 ára, eru í haldi lögreglu vegna málsins.