Tala látinna og slasaðra hækkar eftir flugslys

00:00
00:00

Nú er ljóst að fimm manns að minnsta kosti lét lífið og 65 slösuðust þegar flug­vél í eigu flug­fé­lags­ins TACA fór út af flug­braut og rann út á ak­veg í lend­ingu á flug­vell­in­um í Tegucigalpa í Honduras í kvöld.

Flug­vél­in er af gerðinni Air­bus A-320. Vél­in var að koma frá Los Ang­eles til Tegucigalpa  með viðkomu í San Sal­vador.

Flug­vél­in fór út af braut­inni, rann niður 20 metra langa brekku, yfir veg og brotnaði síðan í þrennt. Eld­ur kom upp í flak­inu og fengu marg­ir farþegar reyk­eitrun.

Svo virðist sem lé­legt skyggni kunni að hafa átt þátt í slys­inu. Flugmaður­inn reyndi að lenda á braut­inni en hóf vél­ina á loft aft­ur. Í síðari til­raun­inni lenti vél­in of langt inni á braut­inni. 

Flug­völl­ur­inn í Tegucigalpa er í fjall­lendi og er tal­inn einn sá hættu­leg­asti í Mið-Am­er­íku.

Flugvélin brotnaði í þrennt.
Flug­vél­in brotnaði í þrennt. Reu­ers
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert