Fjöldi slökkviliðsmanna berst nú við eld í kvikmyndaveri Universal Studios í Los Angeles. Slökkviliðið í borginni fékk tilkynningu um eldinn rétt fyrir sólarupprás í borginni og að minnsta kosti ein sprenging hefði orðið í byggingunni.
Eldurinn er í hljóðveri í bakhúsi á lóð kvikmyndaversins og slökkviliðsmenn reyna að tryggja að eldurinn breiðist ekki út til skógar, sem er skammt frá. Þyrlur eru notaðar við slökkvistarfið.
Ekki er vitað til að neinn hafi sakað.