Það er „alrangt“ að Hillary Clinton ætli að játa ósigur í kvöld í baráttunni um útnefningum sem forsetaefni Demókrataflokksins, sagði kosningastjóri hennar, Terry McAuliffe, í viðtali við CNN í dag. Sagði hann að frétt AP um að Clinton ætli að viðurkenna að Barack Obama hafi nægan stuðning landsfundarfulltrúa sé úr lausu lofti gripin.