Barnslík fannst vafið inn í plast á göngustíg í borginni Halle í austurhluta Þýskalands seint í gær. Krufning hefur leitt í ljós að barnið var lifandi þegar það fæddist en ekki er vitað hve langt er síðan það var skilið eftir. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu stendur yfir leit að móður barnsins.