Fimm ferðamenn, sem voru í köfunarleiðangri undan strönd eyju í Indónesíu, eru fundnir. Leit hófst í gær eftir að ekkert hafði heyrst í fólkinu í tvo sólarhringa. Um er að ræða þrjá Breta, Svía og Frakka.
Lögregla segir, að fólkið hafi fundist í morgun á strönd eyjarinnar Rinca en það barst þangað með öflugum hafstraumum. Talið er að fólkið þurfi læknishjálpar við en það var lengi í sjónum.