Breska ríkisútvarpið, BBC, segir að gríðarlegir fjármunir, sem runnu til verktaka í Írak, hafi glatast, verið stolið eða ekki gerð grein fyrir með eðlilegum hætti frá því innrás var gerð í landið árið 2003. Áætlar BBC að þessi upphæð nemi 23 milljörðum punda, jafnvirði um 3500 milljarða íslenskra króna.
Þetta kemur fram í fréttaskýringarþættinum Panorama, sem hefur rannsakað málið. BBC segir, að byggt sé á upplýsingum bandarískra og íraskra heimildarmanna.
BBC segir m.a. að bandaríska verktakafyrirtækið Halliburton, sem Dick Cheney, núverandi varaforseti Bandaríkjanna, stýrði áður, hafi fengið mikið af verkefnum við uppbyggingu í Írak.