Hvetur Bush ríki Evrópu til þess að sameinast um að herða refsiaðgerðir gegn Írönum en segist helst vilja að deilan leysist við samningaborðið. „En allir möguleikar eru í stöðunni," segir Bush sem hefur ítrekað sagt að ekki sé hægt að útiloka hernaðaraðgerðir gegn Íran.
Íranar svöruðu Bush hins vegar fullum hálsi í dag en stjórnvöld í Íran segja auðgun úrans í Íran sé í friðsamlegum tilgangi.
Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sagði á útifundi í Teheran í dag að tími Bush væri á enda og að markmið Bush um að ráðast inn í Íran hefði ekki náðst. Ahmadinejad sagði Bush vera með Íran í skotlínunni eftir að hafa sent herlið inn í Írak og Afganistan. „Ég segi þér (Bush) að tími þinn er liðinn," sagði Ahmadinejad og bætti við „með náð Guðs mun þér aldrei takast að eyðileggja einn sentímetra af heilögu landi Írans."
Merkel, sagði á blaðamannafundinum að ef Íranar myndu ekki hætta auðgun úrans þá yrði að herða refsiaðgerðir gegn landinu.
Javier Solana, aðaltalsmaður ESB í utanríkismálum, sagði í dag að hann teldi að enn væri hægt að finna friðsamlega lausn á deilunni við Írana og sagðist vonast til þess að ferð hans til Írans á laugardag myndi skila árangri.