Höfuðlaust kvenlík fannst í franskri á í vestur Frakklandi á þriðjudagskvöld. Einnig var búið að fjarlægja af líkinu báða fæturnar.
Það var vegfarandi sem uppgötvaði líkið á þriðjudagskvöld, nálægt lystigarði. Var líkið á floti í Sevre-ánni sem rennur meðfram garðinum sem er í Vertou, suður af borginni Nantes.
Lögreglan á staðnum rannsakar nú málið með aðstoð sérfræðinga.