47 ára gömul ítölsk kona fékk frelsi í dag eftir að hafa verið lokuð inni í svefnherbergi sínu í 18 ár. Fjölskylda konunnar lokaði hana inni árið 1990 þegar í ljós kom að hún bar barn undir belti.
Að sögn lögreglu var 17 ára gamall sonur konunnar einnig í húsinu, sem er í Santa Maria Capua Vetere fyrir norðan Napólí.
Áttræð móðir konunnar, eldri systir og yngri bróðir, verða væntanlega ákærð vegna málsins.
Konan bjó við hræðilegar aðstæður í svefnherberginu þar sem margra ára sorp og úrgangur hafði hlaðist upp. Konan mun einnig eiga við veikindi að stríða.